Þú ert hér: Forsíða > Fræðslumál > Flóamennt

1. gr. Sjóðurinn heitir Þróunar- og símenntunarsjóður Eflingar / Hlífar / Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og ríkis / endurhæfingarmiðstöðva / dvalar- og hjúkrunarheimila. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík. Sjóðurinn starfar annars vegar á grundvelli greinar 10.3.1 í kjarasamningi Starfsgreinasambands Íslands og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, dagsettum 7. apríl 2004, sbr. bókun 2 og viðbótarbókunar, dagsettri 22. mars 2005, við bókun 2, með kjarasamningnum. Hins vegar starfar sjóðurinn á grundvelli samkomulags Eflingar og endurhæfingarmiðstöðva, dvalar- og hjúkrunarheimila dagsett 11. júní 2004. Sjóðurinn starfar með því skipulagi og markmiði sem segir í þessum reglum.

2. gr. Sjóðurinn skal rekinn sem deildaskiptur sjóður í tveimur deildum. Annars vegar er það þróunar- og stofnanadeild og hins vegar starfs- og símenntunardeild. Stjórn sjóðsins setur hvorri deild fyrir sig nánari reglur um úthlutun.

3. gr. Markmið sjóðsins er annars vegar að efla starfs- og símenntun starfsmanna með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni og hins vegar að auka möguleika stofnana á að þróa starfsvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til stofnana á hverjum tíma. Til þess að ná framangreindum markmiðum verður m.a. leitað samstarfs við önnur stéttarfélög, einstakar stofnanir eða ráðuneyti til að koma á starfstengdum námskeiðum í þessu skyni sem starfsmenn geti sótt án verulegs kostnaðar.

4. gr. Sjóðurinn sinnir hlutverki sínu með eftirfarandi hætti:

a) Þróunar- og stofnanadeild

Hlutverk deildarinnar er að veita styrki til fræðsluverkefna á sviði símenntunar sem eru í samræmi við markmið sjóðsins til

  1. stofnana og vinnuveitenda sem í sjóðinn greiða
  2. stéttarfélaga sem að sjóðnum standa
  3. verkefna sem sjóðsstjórn skipuleggur

b) Starfs- og símenntunardeild

Hlutverk deildarinnar er að gefa félagsmönnum stéttarfélaga sem aðild eiga að sjóðnum, kost á að geta sótt án verulegs kostnaðar starfsnám og símenntun sem geri þeim m.a. mögulegt að taka að sér vandasamari störf. Í samræmi við markmið deildarinnar eru veittir styrkir til einstakra félagsmanna.
Jafnframt styrkja báðar deildirnar verkefni sem aðilar semja sérstaklega um í kjarasamningi.