Fræðslumál
Einstaklingsstyrkir Flóamenntar

Þróunar og símenntunarsjóður Eflingar/Hlífar/Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og
ríkis/endurhæfingarmiðstöðva/dvalar- og hjúkrunarheimila.
Sjóðnum er ætlað að styrkja félagsmenn Eflingar-stéttarfélags, Hlífar og VSFK við að sækja sér
menntun sem í boði er á almennum fræðslumarkaði.
- Félagsmaður sem unnið hefur í a.m.k. 6 mánuði af síðustu 12 og greitt félagsgjöld á þeim tíma, á rétt á stuðningi til símenntunar/starfsnáms. Greitt er hlutfallslega fyrir
fólk í hlutastörfum. - Við ákvörðun upphæðar styrkja er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi eða hærra gefur fulla styrkupphæð.
- Styrkir eru greiddir eftir að námi/námskeiði er lokið. Fylla þarf út umsóknareyðublað, skila frumriti reiknings og staðfestingu um að námi sé lokið til VSFK.
- Áunnin réttindi félagsmanna haldast óbreytt þrátt fyrir flutning milli starfssviða Flóabandalagsins. Einnig eru samningar um réttindaflutning milli allra sjóða innan
Starfsgreinasambandsins og V.R. - Sá sem hverfur frá vinnu vegna veikinda, heimilisástæðna eða af öðrum gildum ástæðum heldur rétti sínum til styrks í allt að 24 mánuði, enda komi starfsmaður aftur til starfa eftir starfshlé. Starfsmaður sem lætur af störfum vegna aldurs heldur áunnum réttindum í 24 mánuði eftir starfslok.
- Foreldrar í fæðingar- eða foreldraorlofi og atvinnulausir félagsmenn geta nýtt sér áunnin rétt skv. 1. gr. ef þeir velja að greiða félagsgjöld á tímabilinu.
- Félagsmenn sem ekki hafa íslensku sem móðurmál geta sótt um styrk vegna íslenskukennslu eftir að hafa greitt til félagsins í 1 mánuð.
Fjárhæð endurgreiðslu
- Greitt er að hámarki kr. 60.000 á ári til einstaklings.
- Almennt nám er styrkt að hámarki sem nemur 75% af reikningi.
- Ef nám telst starfstengt er greitt allt að 90%
- Íslenskunám fyrir útlendinga er styrkt 90%.
- Tómstundanám er styrkt að hámarki 18.000 og aldrei meira en 50% af reikningi.
- Félagsmenn eiga rétt á styrk vegna aukinna ökuréttinda að uppæð kr. 100.000,-.
- Félagsmenn sem eru lesblindir eða eiga við lestrar- og ritörðuleika að stríða geta sótt um styrk að hámarki sem nemur 75% af reikningi vegna kaupa á
- hjálpartækjum til stuðnings við lestur eða skrift.
- Veittir eru styrkir til náms og kynnisferða að hámarki 30.000 kr. fyrst eftir þriggja ára samfellda félagsaðild síðan á þriggja ára fresti
Ekki mega líða meira en 12 mánuðir frá því að námi lýkur þar til að sótt er um endurgreiðslu.
Tekið er við umsóknum til og með 20. hvers mánaðar og greitt er út fyrsta virka dag í mánuði. Greitt er inn á bankareikning viðkomandi.
Tilkynningar
Aðalfundur VSFK 24. apríl
Aðalfundur Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis verður haldinn þriðjudaginn 24. ap... meira
Aðalfundur Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis verður haldinn þriðjudaginn 24. ap... meira
Póstlisti
Skráðu þig á póstlistann okkar til að fá nýjustu fréttir, tilkynningar og frv.