Þú ert hér: Forsíða > Fræðslumál > Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, MSS, er sjálfseignarstofnun sem hefur það markmið að bjóða upp á fjölbreytt námsúrval sem þjóni fyrirtækjum, stofnunum, menntastofnunum og almenningi með því að samræma framboð endur- og símenntunar með auknum tengslum atvinnulífs og skóla. Eftirtaldir eru stofnaðilar: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum; Reykjanesbær; Fjölbrautaskóli Suðurnesja; Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis; Iðnsveinafélag Suðurnesja; Verslunarmannafélag Suðurnesja; Rafiðnaðarfélag Suðurnesja; Vélstjórafélag Suðurnesja; Útvegsmannafélag Suðurnesja; Vinnuveitendafélag Suðurnesja; Kaupfélag Suðurnesja og Hitaveita Suðurnesja.

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum var stofnuð 10. desember 1997. Mikil bylting varð í menntunarmálum á Suðurnesjum við stofnunina og í kjölfarið varð aðgengi almennings að námskeiðum meira og aukið svigrúm skapaðist til sí- og endurmenntunar. Á þeim árum sem liðin eru frá stofnun hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt og námsframboðið tekið mið af þörfum hverju sinni.

Meginhlutverk Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum er að efla endur- og símenntun Suðurnesjamanna og auka menntun og lífgæði íbúa svæðisins og efla þannig einstaklinga og atvinnulíf.

Miðstöðin leggur metnað sinn í að veita ráðgjöf og persónulega þjónustu og umhverfi til náms þar sem einstaklingum líður vel.

Sjá heimasíðu MSS