Þú ert hér: Forsíða > Fræðslumál > Starfsafl > Reglur um einstaklingsstyrki

Reglur um einstaklingsstyrki

Félagsmaður í Eflingu-stéttarfélagi, Verkalýðsfélaginu Hlíf eða Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis sem unnið hefur samfellt síðustu 6 mánuði og greitt félagsgjöld á þeim tíma á rétt á stuðningi til símenntunar og/eða starfsnáms. Greitt er hlutfallslega fyrir fólk í hlutastörfum.
Við ákvörðun upphæðar styrkja er miðað við greidd félagsjöld síðustu 12 mánaða.  Félagsgjald af lámarkslaunum í 100% starfi eða hærra gefur fulla styrkupphæð.
Fylla þarf út umsóknareyðublað og skila frumriti reiknings á skrifstofu viðkomandi stéttarfélags. Umsókn þarf að berast viðkomandi stéttarfélagi innan 12 mánaða frá því að námi/námskeiði lauk.

Áunnin réttindi félagsmanna innan Starfsafls og/eða Landsmenntar eða VR  haldast óbreytt þrátt fyrir flutning á milli sjóða, samkvæmt nánari reglum.
Sá sem hverfur frá vinnu vegna veikinda, heimilisástæðna eða af öðrum gildum ástæðum heldur rétti sínum til styrks í allt að 24 mánuði. Að 24 mánuðum liðnum, frá því hann hvarf af vinnumarkaði, fellur réttur hans niður.  Starfsmaður sem lætur af störfum vegna aldurs heldur áunnum réttindum sínum í 24 mánuði.
Foreldrar í fæðingar- eða foreldraorlofi geta nýtt sér áunnin rétt skv. 1. gr. ef þau velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.
Félagsmenn í atvinnuleit halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld af atvinnuleysisbótum.
Upphæðir endurgreiðslu

Hámarksgreiðsla á ári er kr. 60.000, - fyrir almennt nám og lífsleikninámskeið samanlagt. Nám til almennra ökuréttinda er styrkt.  Einnig eru styrkt kaup á hjálpartækjum vegna lesblindu t.d. tölvuforrit.

Námskeið sem falla undir lífsleikni eru styrkt að hámarki kr. 18.000,- á ári.

Félagsmenn eiga rétt á styrk vegna meiraprófs að upphæð kr. 100.000,-

Félagsmenn sem ekki hafa íslensku sem móðurmál geta sótt um endurgreiðslu vegna íslenskukennslu eftir að hafa greitt til félagsins í 1 mánuð.

Starfstengt réttindanám. Félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn síðustu þrjú ár eiga rétt á styrk allt að kr. 132.000,- fyrir eitt samfellt námskeið samkvæmt nánari reglum sjóðsins.

Aldrei er greitt meira en 75% af kostnaði við starfstengt og almennt nám og 50% af tómstundanámi.

Skólafélags-/nemendafélagsgjöld og bókakostnaður er ekki endurgreitt.

Umsóknareyðublað er hægt að nálgast hjá aðildarfélögum eða á skrifstofu Starfsafls.

Tekið er við umsóknum til og með 20. hvers mánaðar og greitt út fyrsta virka dag í mánuði. Greitt er inn á bankareikning viðkomandi.