26.5.2010 14:39:36Guðrún Elísa Ólafsdóttir látin

Guðrún Elísa Ólafsdóttir, fyrrverandi varaformaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, lést að morgni Hvítasunnudags 23. maí sl., eftir erfið veikindi.
Guðrún Elísa Ólafsdóttir var fædd á Ísafirði 3. febrúar 1932. Hún flutti til Keflavíkur ásamt manni sínum, Magnúsi Jóhannessyni sem einnig er látinn og eignuðust þau 4 syni sem allir eru uppkomnir. Barnabörnin eru átta.
Guðrún hóf störf við fiskvinnslu í Keflavík. Hún var fljótt valin til trúnaðarstarfa, fyrst sem trúnaðarmaður á vinnustað, og fljótlega til forystu. Guðrún hafði mjög sterka réttlætiskennd og verkalýðshugsjónin var henni ofarlega í huga. Það gustaði af Guðrúnu og hún lét í sér heyra þegar málefni verkafólks bar á góma.
Á sínum fyrsta fundi hjá Verkakvennafélagi Keflvíkur og Njarðvíkur, sem haldinn var í Ungó árið 1969, var hún kosin í stjórn og þá sem gjaldkeri í eitt ár. Á aðalfundi 18. mars 1973 var hún kjörin varaformaður félagsins. Skömmu siðar lést formaður félagsins í hörmulegu bílslysi, ásamt móður sinni, sem þá var fráfarandi formaður. Guðrún fékk það erfiða hlutskipti að taka við félaginu við þessar erfiðu aðstæður. Hún gegndi formennsku allt þar til félagið sameinaðist Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis um áramótin 1989 og var varaformaður félagsins þar til í apríl 2002.
Guðrún var alla tíð mjög virk í störfum sínum fyrir verkafólk og hvikaði aldrei í baráttunni fyrir bættum kjörum og jöfnun lífskjara.
Guðrún gegndi fjölda trúnaðarstarfa fyrir verkalýðshreyfinguna. Hún sat m.a. sem varamaður í miðstjórn ASÍ, gegndi störfum fyrir Verkamannasamband Íslands og var í Sambandstjórn ASÍ og sat í stjórn MFA.
Menntamál verkafólks voru henni afar hugleikin, hún skynjaði það fljótt að menntun verkafólks er það sem getur lyft Grettistaki og þokað launum verkafólks upp á við og gert vinnustaðina mannlegri og betri.
Að öðrum ólöstuðum hefur Guðrún átt einn stærstan þátt í því hér á Suðurnejum að hvetja fólk til menntunar.
Guðrún var gerð að heiðursfélaga á 70 ára afmælishátíðíð Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis í desember 2002.
Guðrún lét af störfum hjá félaginu á árinu 2003 en hélt áfram að sinna félagstörfum, sat m.a. í stjórn Félags eldri borgara á Suðurnesjum og var formaður þess allt til dauðadags.
Fyrir hönd félaga í Verkalýðs og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis vottum við fjölskyldu Guðrúnar Elísu Ólafsdóttur okkar dýpstu samúð með kæru þakklæti fyrir fórnfús störf hennar í þágu verkafólks á Íslandi.
Aðalfundur Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis verður haldinn þriðjudaginn 24. ap... meira