Þú ert hér: Forsíða

24.5.2011 21:47:06Samningar samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta

Samningur félaganna í Flóabandalaginu, Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, Eflingar-stéttarfélags og Vlf. Hlífar í Hafnarfirði, var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða í atkvæðagreiðslu félaganna.
Á kjörskrá voru 15.614. Atkvæði greiddu 3.034 eða um 19,4%. Já sögðu 2.603 eða 85,8% þeirra sem afstöðu tóku.  Nei sögðu  423 eða 13,9%.  Ógildir og auðir seðlar voru 8 eða  0,3.%. 
  
Atkvæðagreiðslan stóð frá því kjörseðlar voru sendir út til félagsmanna þann 10. maí sl. og lauk kl. 15.00 í dag.
Niðustaðan hefur verið tilkynnt sáttasemjara og Samtökum atvinnulífins. Þetta þýðir að kjarasamningur Flóafélaganna og Samtaka atvinnulífins á almennum markaði er kominn í gildi þar sem SA hefur þegar samþykkt samninginn af sinni hálfu.