Þú ert hér: Forsíða

4.7.2011 21:54:12VSFK og Efling semja við sveitarfélögin

VSFK og efling hafa undirritað nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Meginatriði hans fara hér á eftir. Atkvæðagreiðsla um samninginn hefst í næstu viku um leið og kjörgögn og kynningarbæklingur hafa verið send félagsmönnum. Atkvæðagreiðslu lýkur 19. júlí nk.

Aðalatriði  samningsins:

Samningurinn gildir frá 1. maí 2011 til 30. júní 2014

Ný launatafla tekur gildi frá 1. júní 2011

Launataxtar hækka um 16,9% til 21,09% en þó að lágmarki um  34.000 kr. á samningstímanum

Hækkun orlofsuppbótar er 10.200 kr. og verður  36.000 kr. árið 2011

Desemberuppbót árið 2011 verður 75.500 kr

Nýtt launakerfi í tímamældri ákvæðisvinnu í ræstingum

Við samþykkt kjarasamningsins greiðist sérstök eingreiðsla 50.000 kr. hverjum starfsmanni í fullu starfi sem er við störf í maí og miðast greiðslan við fullt starf í mánuðunum mars-maí. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Starfsmenn sem eru við störf þann 1. febrúar 2012 fá greidda sérstaka eingreiðslu 25.000 kr. miðað við fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall.

Lágmarkslaun verða fyrir fullt starf: 

 Frá 1. júní 2011   196.708  
Frá 1. mars 2012    203.593 
Frá 1. mars 2013  211.941 
Frá 1. mars 2014    219.799

Eftirtalin sveitarfélög eru á samningssvæði Eflingar-stéttarfélags og VSFK: Hveragerðisbær Kópavogsbær Mosfellsbær Reykjanesbær Seltjarnarnesbær Sveitarfélagið Garður Sveitarfélagið Vogar Sveitarfélagið Ölfus

Kjarasamningurinn í heild

Kynningarefni vegna samningsins