Þú ert hér: Forsíða

5.12.2011 10:01:47Félagar úr VSFK í námsferð til Svíþjóðar

Í október sl. fóru þeir Sigurður Magnússon, Sigurður Guðbrandsson og Vilhjálmur Björgvinsson starfsmenn ISAVIA sem allir eru í Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis til Visby Airport í Svíþjóð. Ferð þessi var farin með það að markmiði að starfsmenn fengju tækifæri til að útvíkka sjóndeildarhring sinn með því að kynnast nýjum vinnubrögðum, tækjum og bæta þannig þekkingu sína sem síðan gæti nýst þeim við dagleg störf á flugvöllum hér á Íslandi.

Á Visby Airport tók Annika Nyberg, flugvallastjóri, sem sá um skipulagningu heimsóknarinnar á móti þeim, þeir voru síðan settir í umsjá Lars-Gunnar, vaktstjóra.  Lars-Gunnar fór með þá í kynnisferð um völlinn, sýndi þeim tækjabúnaðinn og aðstöðuna á vellinum.  Einn daginn sátu þeir m.a. fyrirlestur um „Basic Airport Konceptið“, sem var eitt af því sem þeir voru sérstaklega að kynna sér.  Síðustu 3 dagana, fylgdu þeir svo starfsmönnum vallarins og unnu þeirra störf með þeim og fylgdust einnig með brunaæfingu.  Þegar heim var komið þá byrjuðu þeir á því að halda kynningarfund með forstjóra, framkvæmdastjóra, aðstoðarframkvæmdastjóra, starfsmannastjóra og yfirverkstjóra til að kynna fyrir þeim hvernig ferðin gekk fyrir sig og svöruðu mörgum spurningum þeirra.  Búið er að undirbúa kynningu fyrir slökkvistjóra, slökkviliðsmenn og starfsmenn flugvallarþjónustu sem fram fer á næstu dögum.  Í framhaldinu verður unnið úr gögnum og hugmyndum og farið yfir hvað ISAVIA getur nýtt sér í sinni starfssemi. Þeir Sigurður, Vilhjálmur og Sigurður töldu að ferðin hefði bæði verið gagnleg og skemmtileg.

Mannaskipti er samheiti fyrir starfsþjálfun og mannaskiptastyrki í Evrópusambandsins. Markmiðið er að styðja einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun sem miðar að því að auka kunnáttu og færni og efla persónulega hæfni þeirra með því að gefa þeim tækifæri á að kynna sér nýjungar, deila þekkingu og kunnáttu í öðru landi.
Starfsafl sótti um og fékk mannaskiptastyrk frá Leonardo menntaáætlun Evrópusambandsins. Styrkurinn verður notaður til að senda 10 einstaklinga í mismunandi fyrirtækjum, félagsmenn í Eflingu og VSFK til vinnustaða á Norðurlöndunum í vikuþjálfun. Styrkurinn er að upphæð 2,6 m. kr. og er notaður til að kosta ferðir og uppihald starfsmanna.