Þú ert hér: Forsíða

15.4.2010 00:00:00Orlofssumarið 2010 - umsóknarfrestur til 21. apríl

Í sumar býður VSFK upp á fjölmarga orlofskosti, alls í 9 sumarhúsum og íbúð til viðbótar á Akureyri. Tímabiliðer frá 21. maí til 27. ágúst. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, miðvikudaginn 21. apríl nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins.

Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út í sumar:

2 hús í Svignaskarði
3 hús í Húsafelli
2 hús í Ölfusborgum
2 hús í Hraunborgum
1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri

Útleigutímabilið er frá föstudeginum 21. maí og fram til föstudagsins 27. ágúst 2010.
Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 miðvikudaginn 21. apríl 2010.
Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi.

Orlofsnefnd VSFK