Þú ert hér: Forsíða > Kjaramál > Desemberuppbót

Desemberuppbót

Desemberuppbót er eingreiðsla sem atvinnurekendum ber samkvæmt kjarasamningi að greiða starfsmönnum sínum í desember ár hvert. Fjárhæðin ákvarðast meðal annars af  starfstíma og starfshlutfalli á yfirstandandi ári. Desemberuppbótin er mishá eftir kjarasamningum. Í kjarasamningi Flóabandalagsins og SA segir eftirfarandi um desemberuppbót:

„Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Uppbótin greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Heimilt er með samkomulagi við starfsmann að uppgjörstímabil sé frá 1. desember til 30. nóvember ár hvert í stað almanaksárs.

Desemberuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna desemberuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar. Starfsmaður sem er í ráðningarsambandi við fyrirtæki en er ekki á launaskrá vegna hráefnisskorts eða vegna veikinda í desember missir ekki rétt til desemberuppbótar og reiknast sá tími með við útreikning desemberuppbótar mæti hann til vinnu að lokinni fjarveru vegna hráefnisskorts.“

Desemberuppbót 2011 samkvæmt kjarasamningi Flóabandalagsins og SA og samkvæmt samningi við ríkið, er kr. 48.800 + 15.000 kr. álag sem reiknast með sama hætti og desemberuppbót.