Þú ert hér: Forsíða > Kjaramál > Orlofsuppbót

Orlofsuppbót

Orlofsuppbót er eingreiðsla sem atvinnurekendum ber samkvæmt kjarsamningi að greiða starfsmönnum sínum ár hvert í tengslum við orlofstöku þeirra. Orlofsuppbótin getur verið mishá eftir kjarasamningum.

Í kjarasamningum Flóabandalagsins og Samtaka atvinnulífsins, segir eftirfarandi:

„Uppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuum m.v. 30. apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí. Orlofsuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.“

Orlofsuppbót 2010 er 25.800 kr. samkvæmt samningum Flóabandalagsins og SA, samningi við ríkið og við Launanefnd sveitarfélaga.