Þú ert hér: Forsíða > Orlofsmál > Orlofshús > Hraunborgir nr. 21

Hús nr. 21 í Hraunborgum

Á orlofssvæði sjómanna Hraunborgum í Grímsnesi á félagið tvö hús.

Húsið er steinsnar frá félagsmiðstöðinni á orlofssvæðinu.  Þar er ferðamannaverslun, sundlaug, heitir pottar, mini golf og golfvöllur. Þá er sérlega gott útivistarsvæði fyrir börn. Verslun er að Minni-Borg. Margir áhugaverðir staðir eru í nágrenninu og stutt er bæði á Selfoss og Laugarvatn þar sem sækja má margskonar dægrastyttingu.

Í húsunum er svefnloft með tveimur svefnherbergjum. Á neðri hæð er stofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Svefnaðstaða er fyrir 5 manns á svefnloftinu. Við húsin eru heitir pottar og stór verönd.

Frá Hraunborgum er stutt að fara á marga fallega útsýnisstaði á undirlendi Suðurlands.

Húsin í Hraunborgum eru leigð allt árið

Hús Fjöldi svefnherbergja Svefnpláss Heitur pottur
Húsafell nr. 12 2 6
Húsafell nr. 60 3 8
Húsafell nr. 64 2 + svefnloft 8
Svignaskarð nr. 8 2 7
Svignaskarð nr. 10 3 8
Hraunborgir nr. 20 2 5
Hraunborgir nr. 21 2 5
Ölfusborgir nr. 24 3 6 Nei
Ölfusborgir nr. 34 3 6 Nei