Þú ert hér: Forsíða > Orlofsmál > Úthlutunarreglur

Úthlutun og punktakerfi

Dvalartímabilum í orlofshúsum VSFK er úthlutað eftir svokölluðu punktakerfi.

Sá sem greiðir félagsgjöld til félagsins fær einn punkt fyrir hvern mánuð sem greitt er. Ekki skiptir máli hvað félagsgjöldin eru há og eða hvort um hlutastarf sé að ræða.

Sérstök punktaskrá er varðveitt í tölvukerfi félagsins, þar sem haldið er saman öllum söfnunarpunktum  hjá öllum greiðendum til félagsins.

Sérstök umsóknareyðublöð eru útbúin á hverju ári. Skýrar leiðbeiningar er að finna á umsókninni um útfyllingu.  Þar kemur fram hvaða bústaðir eru til úthlutunar á hvaða tímabili, ásamt punktafjölda sem dregst frá við úthlutun. Fjöldi húsa getur verið mismunandi frá ári til árs, þar sem félagið hefur tekið á leigu bústaði yfir sumartímann til að koma til móts við mikla þörf félagsmanna.

Þegar úthlutun fer fram, er auglýst í staðarblöðum og á vefnum með góðum fyrirvara.  Öllum félagsmönnum er sent umsóknareyðublað ásamt stöðu þeirra í punktakerfinu. Ef fólk vill gera athugasemdir við stöðu sína í kerfinu s.s. ef ekki hafa verið gerð skil á félagsgjöldum, þá þarf að gera það áður en auglýstur frestur rennur út.  Hægt  er að koma inn leiðréttingum, jafnvel þótt um langvarandi misræmi eða villur sé að ræða. Til að láta leiðrétta punktastöðu, skal framvísa launaseðlum þar sem fram kemur frádráttur vegna félagsgjalda. Komi fram misræmi, er það leiðrétt samstundis, jafnvel þótt launagreiðandi hafi ekki gert skil til félagsins.
Þegar dvalarleyfum hefur verið úthlutað, eru punktar dregnir frá punktainnistæðu hvers og eins. Mismunandi er hvað frádráttur er verið mikill, allt eftir hvar úthlutað er og fyrir hvaða tímabil. Nánari upplýsingar er að finna á umsóknareyðublaði.