Umsókn um fræðslustyrk Sjómenntar
Hægt er að sækja um fræðslustyrk með því að skila umsóknareyðublaði, kvittun fyrir námskeiði (frumrit) og síðasta launaseðil á skrifstofu félagsins eða með því að setja gögn í póstkassa félagsins á 1. hæð.
Eins er hægt að senda gögnin í tölvupósti.
Þá þarf að vista umsóknareyðublaðið í tölvu, fylla það út og senda það sem viðhengi ásamt kvittun og síðasta launaseðli á netfangið johann@vsfk.is.
Með umsókn skal skila frumriti reiknings sem er á nafni félagsmanns þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing, nafn og kennitala fræðsluaðila. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi skóla/fyrirtæki. Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða.
Vegna umsóknar um styrk fyrir nám eða námskeið erlendis þarf að leggja fram frumrit reiknings á upprunalegu tungumáli og á ensku. Þá verður að vera sundurliðuð kostnaðarskipting, þ.e. ekki er greitt fyrir ferðir, gistingu og uppihald. Brýnt er að allur texti sé skýr og skilmerkilegur. Sé þýðing ekki fyrir hendi fæst ekki greiddur styrkur.