Desemberuppbót

Desemberuppbót er eingreiðsla sem atvinnurekendum ber samkvæmt kjarasamningi að greiða starfsmönnum sínum í desember ár hvert. Fjárhæðin ákvarðast meðal annars af  starfstíma og starfshlutfalli á yfirstandandi ári. Desemberuppbótin er mishá eftir kjarasamningum.
 
Nánari reglur um desemberuppbót/persónuuppbót má finna í kjarasamningnum.
 
Upphæð desemberuppbótar / persónuuppbótar 2024
 
Gerð kjarasamnings Upphæð desemberuppbótar
Almennir samningar 106.000 kr.
Kjarasamningar við sveitarfélög 135.000 kr.
Kjarasamningur við ríki 106.000 kr.
Kjarasamningur vegna starfsfólks á hjúkrunarheimilum (SFV) 106.000 kr,
 
Til að vera viss um að þið séuð að fá rétt greitt er hægt að nýta sér reiknivélar SGS.
 
Reiknivélar
 
 
 
 

Kjaramál

Kjaramál eru eitt mikilvægasta viðfangsefni hvers stéttarfélags. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis er aðili að allmörgum kjarasamningum.

Orlofsmál

Orlofsárið er tímabilið frá 1. maí til 30. apríl ár hvert. Samkvæmt lögunum, skal veita orlof í einu lagi á tímabilinu frá 2. maí til 15. september, nema um annað sé samið.

Umsóknir og eyðublöð

Hér er hægt að nálgast eyðublöð til að sækja um bætur úr sjúkrasjóði, fræðslusjóðum, orlofsaðstöðu og önnur eyðublöð sem tengjast starfsemi félagsins.