Samningar undirritaðir

Helstu atriði nýs kjarasamnings

Kaupliðir

Almenn launahækkun

Hinn 1. janúar 2014 skulu laun hækka um 2,8%, þó að lágmarki kr. 8.000 á mánuði fyrir dagvinnu miðað við fullt starf. Aðrir kjaratengdir liðir hækka um 2,8% á sama tíma.

Sérstök hækkun kauptaxta

Í stað áðurgildandi kauptaxta komi nýir sem eru hluti samninga viðkomandi aðildarsamtaka ASÍ. Launataxtar undir 230.000 kr. á mánuði hækka sérstaklega um 1.750 kr. Kauptaxtar gilda frá 1. janúar 2014.

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf skv. kjarasamningum viðkomandi aðildarsamtaka ASÍ skulu vera kr. 214.000 frá 1. janúar 2014 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki.

Desember- og orlofsuppbót

Desemberuppbót miðað við fullt starf er á árinu 2014 kr. 53.600 (VR/LÍV 60.900).

Orlofsuppbót (1.maí til 30. apríl) miðað við fullt starf er á árinu 2014 kr. 29.500 (VR/LÍV 22.200).

Framlög til fræðslu- og starfsmenntasjóða hækka um 0,1%.

Helstu ávinningar samningsins

- Almenn launahækkun.

- Sérstök áhersla á hækkun lægstu launa.

- Aukið fjármagn og kraftur settur í starfsmenntamál.

- Efri mörk í lægsta þrepi tekjuskatts hækka úr 256.000 kr. í 290.000 kr. Skatthlutfall í miðþrepi lækkar úr 25,8% í 25,3%.

- Stærstu sveitarfélög landsins hafa tekið áskorun verkalýðshreyfingarinnar og hækka ekki gjaldskrár sínar um áramót.

- Gjaldskrárhækkanir ríkisins verða ekki meiri en 2,5% á ári, ríkisstjórnin mun endurskoða breytingar á gjöldum sem þegar hafa verið samþykktar.

- Unnið verði að því að við framkvæmd kjarasamninga verði miðað við umfrang umsaminna launahækkana ásamt samningsbundnum starfsaldurshækkunum og starfsþróunar þannig að hún samrýmist verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands.

- Ráðist verður í markvissar aðgerðir til stuðnings kaupmætti.

- Samstilltar aðgerðir samningsaðila til að halda verðbólgu innan 2,5% markmiðs Seðlabanka Íslands.

Kjarasamning aðildarsamtaka ASÍ og SA má sjá í öðru viðhengi í póstinum.

Kjarasamningurinn sem aðildarsamtök Alþýðusambands Íslands undirrituðu 21. desember við Samtök atvinnulífsins er svokallaður aðfarasamningur. Auk launabreytinga gefur samningurinn aðilum 12 mánuði til að undirbúa gerð langtímasamnings sem á að tryggja stöðugleika í íslensku efnahagslífi og kaupmáttaraukningu til framtíðar. Vinna við undirbúning slíks langtímasamnings hefst strax í byrjun nýs árs. Með samningnum er tekin upp sú nýbreytni að gengið er frá sérstakri viðræðuáætlun sem unnið verður eftir með tímasettum markmiðum um framvindu.

Aðildarsamtök ASÍ settu sér það markmið með nýjum kjarasamningi að auka kaupmátt, hækka lægstu laun umfram önnur laun, tryggja lága verðbólgu og undirbyggja stöðugleika. Þessir kjarasamningar eru mikilvægt skref í þessari stefnumótum, þar sem tekist hefur að tryggja helstu markmiðin. Nýi kjarasamningurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember 2014.

Sjá samning

 

Kjaramál

Kjaramál eru eitt mikilvægasta viðfangsefni hvers stéttarfélags. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis er aðili að allmörgum kjarasamningum.

Orlofsmál

Orlofsárið er tímabilið frá 1. maí til 30. apríl ár hvert. Samkvæmt lögunum, skal veita orlof í einu lagi á tímabilinu frá 2. maí til 15. september, nema um annað sé samið.

Umsóknir og eyðublöð

Hér er hægt að nálgast eyðublöð til að sækja um bætur úr sjúkrasjóði, fræðslusjóðum, orlofsaðstöðu og önnur eyðublöð sem tengjast starfsemi félagsins.